Áratugapistill: Leikarar

| 11. Feb, 2010 | 0 Comments

Þessi pistill fjallar um karlleikara áratugarins sem stóðu upp úr, vöktu ýmist mikla athygli á verðlaunahátíðum eða gerðu það gott ítrekað í vinsælum myndum og sumir leikarar eiga heima í báðum flokkunum. Það var gríðarlega erfitt að velja og hafna enda úr mörgum leikurum að velja, margir leikarar áttu mjög góðan áratug þó að nokkrir standi algjörlega upp úr. Ég ákvað að skipta uppí nokkra flokka eins og í fyrri pistlinum sem ég skrifaði um leikstjóra áratugarins og skipta pistlinum á milli karla og kvenna.

ATH: Færslunni er skipt í fimm síður. Til að fara á næstu síðu þarf að velja hana úr drop-down valmyndinni hér efst eða neðst í færslunni.

LEIKARAR ÁRATUGARINS

Úber stjörnur – Þeir sem hafa drottnað yfir öllum öðrum leikurum síðustu 10 ára:

Johnny Depp: Það er ekki hægt að deila um það að Johnny Depp er langstærsta kvikmyndastjarna heims í dag. Satt best að segja man ég ekki eftir annarri eins stjörnu og Johnny Depp er í dag. Hugsanlega má telja Harrison Ford á 9. áratugnum álíka stjörnu (Star Wars+Indiana Jones myndirnar) og Johnny er í dag en fyrir utan að vera gríðarlega vel metinn innan kvikmyndaheimsins, þá elska fjölmiðlar líka Johnny Depp. Hann er einmitt þessi fullkomna stjarna, hann er ástríkur faðir og í hamingjusömu sambandi við frönsku fyrirsætuna Vanessu Paradis en þau eru búin að vera saman í hátt í 15 ár og þótt ótrúlegt megi virðast, þá nær hann að halda einkalífi sínu ótrúlega vel fjarri fjölmiðlum. Árið 2003 og 2009 var Johnny Depp kosinn af People tímaritinu „kynþokkafyllsti karlmaður heims“ og hefur verið á fjölmörgum listum á undanfarin á yfir stærstu stjörnur ársins og kynþokkafyllstu leikarana.

Johnny Depp hefur lengi verið frægur leikari. Hann átti fínan 10. áratug þar sem hann lék m.a. í Edward Schissorhands, Ed Wood, What’s Eating Gilbert Grape og Donnie Brasco. Hann hefur alltaf verið til staðar og vakið verðskuldaða athygli en aldrei talinn „stórstjarna“ eins og Brad Pitt eða Tom Cruise enda léku þeir í mjög vinsælum myndum sem rökuðu inn peningum en þóttu ekkert endilega rosalega góðar. Johnny var öðruvísi leikari, hann valdi hlutverk sín vel (valdi gæði fram yfir peninga og vinsældir) og lék oftar en ekki í litlum myndum eftir félaga sinn Tim Burton. Árið 2003 reyndist hins vegar vendipunktur í lífi Johnny Depps. Það ár kom nefnilega út myndin Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl og hún sló rækilega í gegn (í 40. sæti yfir vinsælustu myndir allra tíma) og gerði stór-ofur-risastjörnu úr Johnny Depp sem lék kapteininn Jack Sparrow svo eftirminnilega. Það má segja að Pirates … hafi verið fyrsti alvöru smellurinn sem Johnny lék í. Og nú varð ekki aftur snúið. Johnny var skærasta stjarna ársins 2003 og aðrir leikarar stóðu í skugga hans og hafa varla komist úr skugganum síðan. Pirates … varð svo vinsæl að það var ákveðið að gera tvær myndir til viðbótar sem urðu svo enn vinsælli en forverinn, t.d. er mynd nr. 2 í röðinni fjórða vinsælasta mynd allra tíma og mynd nr. 3 sjöunda vinsælasta, og má þakka Johnny Depp að miklu leyti vinsældir myndanna enda skapaði hann þennan Jack Sparrow karakter sem er orðinn ódauðlegur.

Johnny fékk Óskarstilnefningu fyrir Pirates 1, svo aftur ári seinna fyrir Finding Neverland og svo fyrir Sweeney Todd árið 2008 en hefur ekki unnið til verðlaunanna ennþá. En það mun gerast fyrr eða síðar. Hann lék einnig í fjölmörgum myndum sem urðu vinsælar, t.a.m. Chocolat, Blow, Once Upon a Time in Mexico, Charlie and the Chocolate Factory og Public Enemies.

Johnny Depp mun sjást næst í stórmynd Tim Burtons um Lísu í Undralandi. Ég býst við einhverju stórkostlegu augnakonfekti þar.

Brad Pitt: Stjörnurnar verða ekkert mikið stærri en Brad Pitt. Ekki nóg með að vera ein stærsta stjarna síðustu 20 ára, þá fær einkalíf hans alveg gríðarlega mikla umfjöllun því eins og allir vita (þeir sem vita þetta ekki ættu að skríða út úr hellinum sínum núna) þá er hann sambýlismaður Angelinu Jolie og fyrrverandi eiginmaður Jennifer Aniston, báðar leikkonur sem eru gríðarlega frægar og endalaust á milli tannanna á fólki. Athyglin sem Brad Pitt fær er því alveg fáránlega mikil þó að ferill hans hafi verið brokkgengur á áratuginum.

Brad Pitt er umdeildur leikari. Á árum áður þótti hann ekkert sérstakur leikari, óttalegur „pretty boy“ sem gerði ekkert annað en að láta konur kikna í hnjánum. Ég gæti ekki verið meira ósammála. Brad Pitt er miklu meira en eitthvað andlit. Skoðum ferilinn hans síðustu 10 ár aðeins nánar.

Eftir að hafa leikið einn svalasta karakter síðari ára, Tyler Durden, í einhverri umtöluðustu mynd síðasta áratugar, Fight Club, þá var Brad Pitt á leiðinni að verða ein stærsta kvikmyndastjarna heims. Áratugurinn byrjaði þó vel en það var einhver smá hiksti. Árið 2000: Snatch. Klárlega ein af myndum áratugarins. Gerð af Bretum og af breskum leikstjóra og náði þar af leiðandi ekki að sigra heiminn. En þrátt fyrir að vera bresk mynd og, á þeim tíma, með frekar óþekktum leikstjóra, náði hún að hala inn meira en 30 milljónum dollara í Bandaríkjunum sem er bara helvíti gott. Brad Pitt sýnir hugsanlega sinn skemmtilegasta leik á ferlinum í Snatch.

Brad Pitt birtist í þremur myndum árið 2001, The Mexican sem var hálfslöpp (sjá gagnrýni) og náði á einhvern ótrúlegan hátt að skila hagnaði, líklega má þakka aðalleikurunum það en fyrir utan Brad Pitt var Julia Roberts í hinu aðalhlutverkinu. Svo var það Spy Game, ansi sniðug njósnaramynd sem náði þó ekki að verða neitt gríðarlega vinsæl. Að lokum var það Ocean’s Eleven sem varð mjög vinsæl enda engir aukvisar á ferð í helstu hlutverkum, þar má nefna stjörnur á borð við George Clooney, Matt Damon og Juliu Roberts en myndirnir urðu svo að lokum þrjár og urðu þær allar vinsælar þrátt fyrir blendna dóma. Næsta markverða ár hjá Pitt var 2004 en þá kom út stórfloppið Troy og framhaldsmyndin Ocean’s Twelve. Báðar mjög slappar myndir þó að Ocean’s Twelve hafi verið ívið skárri. Troy var myndin sem átti að gera Brad Pitt að stærstu stjörnu heimsins en það eina sem myndin gerði var að gefa áhorfandanum kjánahroll hvað eftir annað. Brad slapp fyrir horn í þeirri mynd, hann fékk þó mikla athygli út á vel vaxinn og olíuborinn skrokkinn. Skiljanlega.

Eftir nokkur mögur ár þá hrökk Brad Pitt hressilega í gang árið 2005 með Mr. & Mrs. Smith. Það má deila um gæði myndarinnar en það má alveg fullyrða að hún er fullkomin afþreying enda varð hún gríðarlega vinsæl. Árið 2006 kom svo Babel, mjög dramatísk og Brad Pitt í hádramatísku hlutverki sem hann negldi og fékk tilnefningu til Golden Globe. Varð ekkert gríðarlega vinsæl en vakti verulega athygli og fékk sjö tilnefningar til Óskars. Árið 2007 var nokkuð gott fyrir Brad, hann birtist í þriðju Ocean’s myndinni og varð mjög vinsæl eins og forverarnir en það var hins vegar vestrinn The Assassination of Jesse James by the Coward Robert Ford sem vakti töluverða athygli, Brad Pitt þótti sýna stórleik og myndin talin ein besta mynd ársins. En hún gjörsamlega floppaði í miðasölu og var algjörlega hunsuð á verðlaunahátíðum. Ósanngjarnt sögðu þeir fáu sem sáu myndina.

2008 og 2009 eru bestu ár Brad Pitt á ferlinum síðan ´94-´96. Hann lék í einni óvæntustu mynd ársins 2008 sem var Burn After Reading. Þó að hlutverk hans hafi ekki verið ýkja stórt, þá átti hann klárlega bestu mómentin í myndinni. Brad Pitt sást svo stuttu seinna í The Curious Case of Benjamin Button sem er að mínu mati ein af hans allra bestu myndum og ein af myndum síðasta árs. Brad Pitt fékk Óskarsverðlaunatilnefningu fyrir þá mynd en varð að lúta í lægra haldi fyrir Sean Penn (Milk). Á haustmánuðum síðasta árs sást hann svo í Inglourious Basterds, mynd sem er svo mikil snilld að ég á ekki orð til að lýsa henni og Brad Pitt einnig sjúklega góður í henni.

Þó að Brad hafi misstigið sig reglulega á áratuginum, þá átti hann í heildina góðan áratug og þó að hann leiki í slæmri mynd, þá eru menn fljótir að fyrirgefa þegar hann er annars vegar. Jafnvel þó að allt skyldi fara í fokk á nýjum áratug fyrir Brad Pitt, svo framarlega sem hann er með Angelinu Jolie, þá mun hann vera í kastljósi fjölmiðla og vera stjarna.

Will Smith: Þessi töffari sló svo rækilega í gegn á síðasta áratug með Bad Boys árið 1995, Independence Day árið 1996 og Men In Black árið 1997. Allt feykilega vinsælar myndir þar sem hasar og grín blönduðust saman á góðan hátt. Will Smith vildi hins vegar láta taka sig alvarlega á nýjum áratug og var tilbúinn að taka smá séns. Hann byrjaði áratuginn á tveimur dramatískum myndum, annars vegar The Legend of Bagger Vance, sem varð ekki vinsæl en er samt sem áður fín dramamynd og hins vegar Ali, mynd um boxarann Muhammad Ali. Sú mynd var hálfgert flopp en Will Smith sýndi góða takta í myndinni og fékk sína fyrstu Óskarstilnefningu. Will Smith ákvað að feta á fornar slóðir eftir tvær misheppnaðar myndir í röð til að halda við stjörnuímyndinni enda svínvirkaði sú formúla fyrir hann, þ.e.a.s. grín og hasar. Men in Black II kom út árið 2002 og rakaði inn peningum þrátt fyrir að vera skelfilega leiðinleg og Bad Boys 2 kom út ári síðar og varð mjög vinsæl. Will Smith ákvað að setja dramahlutverkin á bið í nokkur ár og lék næst í I, Robot, fínni sci-fi mynd eftir Alex Proyas sem varð mjög vinsæl, hann talaði líka inná misheppnaða tölvuteiknimynd árið 2004, Shark Tale, en varð þrátt fyrir það gríðarlega vinsæl og svo kom hin feykivinsæla Hitch sem malaði gull. Árið 2006 var Will Smith tilbúinn í dramað á ný og lék í The Pursuit of Happyness. Það borgaði sig, hún vakti mikla athygli á Will Smith sem dramaleikara, hann fékk sína aðra Óskarstilnefningu og myndin varð þar að auki mjög vinsæl. Árið 2007 kom I Am Legend, risa heimsendamynd með risa budget-i og hún varð ein vinsælasta mynd ársins í Bandaríkjunum og annars staðar í heiminum, er t.a.m. í  54. sæti yfir vinsælustu myndir allra tíma. Það komu tvær myndir út árið 2008 með Will Smith í aðalhlutverki, mjög ólíkar en báðir urðu mjög vinsælar; Hancock var ekta sumarmynd, hasar/grínmynd með óvæntri fléttu og varð gríðarlega vinsæl. Seven Pounds var aftur á móti hádramatísk mynd og var á einhvern óskiljanlegan hátt algjörlega hunsuð á verðlaunahátíðum. Will Smith átti stórleik í þeirri ræmu.

Það er óhætt að segja að Will Smith sé arðbær fjárfesting því allar hans myndir því frá því hann lék í Men in Black II árið 2002, og sjö næstu – að Seven Pounds, fóru allar yfir 100 milljón dollara markið, samtals átta myndir. Það mun vera met. Þar að auki fóru I Am Legend og Hancock báðar vel yfir 200 milljónir dollara og Men in Black II vantaði hársbreidd í að ná sama marki. Will Smith er gríðarlegt aðdráttarafl enda einn vinsælasti leikari heims. Ef það er einhver sem hefur álíka aðdráttarafl og Will, þá er það Adam Sandler.

Þar fyrir utan er ímyndin sem Will Smith hefur á sér fyrir utan kvikmyndanna, mjög góð. Hann er þriggja barna faðir og búinn að vera kvæntur Jada Pinkett-Smith síðan 1997. Hann er mikil fyrirmynd barna og unglinga og hefur margoft komið fram á Kids Choice Awards og unnið þau verðlaun sex sinnum, oftast allra.

Áratugapistlar:
1. Leikstjórar
2. Leikarar
3. Leikkonur
4. Myndir

Pages: 1 2 3 4 5

Tags: , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , , ,

Category: Greinar

Leave a Reply

Switch to our mobile site